Alþjóðlegt tungumál viðskiptanna – Vinnustofa 21. feb. 2018.
Vörustjórnunarfélagið kynnir áhugaverða hálfs dags vinnustofu um hagnýtingu GS1 strikamerkjatækninnar í vörustjórnun. Vinnustofan ber yfirskriftina "Alþjóðlegt tungumál viðskiptanna" og er hugsuð fyrir verslunar-, flutninga- og framleiðslufyrirtæki. Hún fer fram miðvikudaginn 21. febrúar nk. á 9. hæð í Húsi Verslunarinnar. Opnað hefur verið fyrir skráningu [su_button button url="https://logistics.is/skraning_a_atburd/"icon="icon: pencil" desc="Fara á skráningarsíðu"]Skráning[/su_button] Farið verður í mikilvæga þætti er varða notkun strikamerkjatækninnar og skráningu vöruupplýsinga, rýnt verður í kröfur evrópskra og alþjóðlegra reglugerða varðandi Omnichannel, og fjallað um þróun á sviðum rekjanleika, EPC/Blockchain, svo eitthvað sé nefnt. Þátttakendur fá einnig leiðsögn í hagnýtu verkefni sem snýr að skráningu matvara í netverslun. Leiðbeinandi er Benedikt Hauksson, verkfræðingur og framkvæmdastjóri GS1 Ísland. Endilega kynnið ykkur efni vinnustofunnar í meðfylgjandi auglýsingu (PDF). Takmarkaður fjöldi þátttakenda. Aðildarfyrirtækjum og öðrum félögum í Vörustjórnunarfélaginu býðst þriðjungsafsláttur á vinnustofuna, sbr. auglýsingu: Alþjóðlegt tungumál viðskiptanna - Vinnustofa 21. febrúar nk.