You are currently viewing Heimsókn til Samskipa – fimmtudagur 3. maí

Það er komið að næstu fyrirtækjaheimsókn Vörustjórnunarfélagsins: Til Samskipa hf. fimmtudaginn 3. maí kl. 8.30. Forsvarsmenn fyrirtækisins munu bjóða gestum upp á kynningu og umræður um sumt af því sem er á döfinni í rekstri fyrirtækisins. Einkum verður leitast við að veita innsýn í starfsemi fyrirtækisins erlendis og rætt um hvað er helst að gerjast á evrópskum flutningamarkaði nú um stundir.

Þetta er upplagt tækifæri fyrir fólk í vörustjórnun og flutningum að fá kynningu á því sem stendur fyrir dyrum hjá stórfyrirtæki í þessum geira. Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar með kynningunni svo þetta ætti að geta orðið ákjósanleg byrjun á umræddum fimmtudegi!

Mæting stundvíslega fyrir kl. 8.30 í aðalstöðvar Samskipa í Kjalarvogi 7-15, 104 Rvk. Kynningin fer fram í ráðstefnusalnum á 3. hæð aðalstöðvanna. Skráning fer fram með tölvupósti á skraning@logistics.is, þar sem fram koma nöfn, tölvupóstur og fyrirtæki.

Við hlökkum til að sjá ykkur!