Lykill að skilvirku vöruflæði
Í innkaupum eru teknar ákvarðanir um mikilvæga þætti vörustýringa í fyrirtækjum. Kostnaður, eins og innkaups- og flutningsverð, hefur beina tengingu við magnbundnar innkaupaákvarðanir. Oft eru aðrir kostnaðarliðir eins og birgðahaldskostnaður, fjárbinding og pöntunarkostnaður ekki eins skýrir og sýnilegir. Innkaupafólk fær oft ámæli um að skortur sé á vörum en fær aftur á móti hrós um að veltuhraðamarkmiðum sé náð. Starfsfólk í innkaupum eru lykilaðilar í að tryggja skilvirkt vöruflæði, því er mikilvægt að það hafi skýrt umboð til athafna sem eru afmörkuð með skýrum mælikvörðum árangurs.
Markmið námskeiðsins:
Á námskeiðinu eru grunnatriði innkaupa- og vörustjórnunar kynnt. Farið er yfir leiðir við forgangsröðun innkaupa þar sem áhersla er á hámörkun veltuhraða og samtímis lágmörkun hættu á vöruskorti. Helstu áskoranir innkaupa eru rýndar og ræddar. Markmiðið er að í lok námskeiðsins sitji eftir mögulegar leiðir til að bæta innkaupastýringu.
Um námskeiðið :
- Grunnatriði innkaupastjórnunar
- Áhrif skilvirkra innkaupa á arðsemi
- Mikilvægi ABC greiningar
- Notkun líftímagreininga við innkaup
- Beinn og óbeinn kostnaður tengdur innkaupum
- Samspil birgðaverðmætis og þjónustustigs
Námskeiðið er hluti af námskeiðum sem vörustjórnunnarfélagið helfur í febrúar 2023
Aðildarfyrirtækjum og öðrum félögum í Vörustjórnunarfélaginu býðst veglegur afsláttur.
Þatttökugjald fyrir stök namskeid:
- Fyrir adilðafelog 28.900 kr
- Fulltgjald 39.900 kr