Haustráðstefna 2022

ORKUSKIPTI Í VÖRUFLUTNINGUM

Eru rafknúin flutningatæki raunhæfur kostur fyrir sjó- og landflutninga?

Skráning stendur yfir

Days
Hours
Minutes

Þriðjudaginn 18. október verður haustráðstefna Vörustjórnunarfélags Íslands 2022 haldin á
Grand Hótel í Reykjavík. – Gullsalur

  • Fundarstjóri: Thomas Möller, ráðgjafi og stjórnarmaður í Rarik
  • Einvala lið fyrirlesara með innsýn í ólík svið endurnýjanlegra orkugjafa munu deila með okkur sýn á áskoranir og tækifæri við lausn á viðfangsefninu..
  • Um er að ræða mikilvæga ráðstefnu í vörustjórnunarmálum á Íslandi og það er von okkar að hagsmunaaðilar láti þennan viðburð ekki fram hjá sér fara.
  • Fjallað verður um leiðir til að minnka birgðir og auka þjónustustig á tímum óvissu í aðfangakeðjum.

Húsið opnar kl 8:15 með skráningu, kaffi og bakkelsi, en dagskráin hefst stundvíslega kl 8:45 og stendur til hádegis.

Ráðstefnugjaldið er 24.900 kr. en félagsmenn fá 20% afslátt og greiða 19.900 kr.

Dagskrá

Fundarstjóri: Thomas Möller, ráðgjafi og stjórnarmaður í Rarik

08:45 Opnun ráðstefnu.

09:00 Orkuskipti í vöruflutningum á landi og á sjó

Gunnar Tryggvason, starfandi hafnarstjóri Faxaflóahafna. 
Framsöguerindi um orkuskipti í vöruflutningum.

09:20 Hvernig getum við stutt við orkuskipti í vöruflutningum?

Einar Sigursteinn Bergþórsson, forstöðumaður Orkusviðs N1.
Helstu áskoranir við uppbyggingu þjónustu við rafdrifna vöruflutninga.

09:35 Orkuskipti atvinnutækja

Auðun Freyr Ingvarsson, framkvæmdastjóri VETNIS Iceland ehf.
Nýting á grænu vetni á stór flutningatæki á Íslandi

09:55 Hleðslulausnir fyrir stærri ökutæki í nútíð og framtíð

 Hjalti Sigmundsson, RST Net ehf.
• Um RST Net/Orkuhlöðuna og orkuskiptaverkefni sem við erum að vinna í.
• Hleðslulausnir framtíðarinnar – Megawatt Charging System tengið (MCS).
• Áhrif orkuskipta á leiðarkerfi flutningabíla.
• Áhugaverðar lausnir erlendis (t.d. WattEV).

10:15 KAFFIHLÉ

10:45 Hugleiðingar um orkuskiptin, kröfur og hindranir

 Guðmundur Oddgeirsson, Hagar hf.
• Takmarkanir á farmþunga.
• Lausnir sem verða í boði vegna kælingar farmrýmis og vörulyfta í farmrými.
• Hleðslustæði í heimahöfn rekstraraðila, afl heimtauga og hleðslutími.
• Kostnaðarmunur olíu vs. rafmagns að meðtöldum afskriftartíma.

11:00 Orkuskipti vöruflutninga við erfiðar aðstæður

Þorsteinn Másson, framkvæmdastjóri Bláma ehf.

11:10 Ný kynslóð sjálfkeyrandi og rafdrifinna vöruflutningabíla, fjarfyrirlestur

 Per-Olof Arnas, Senior Logistics Strategist, Einride AB, Svíþjóð.
Gunnar Stefánsson prófessor verður með inngangsorð.

11:45 Áætlanir verða að veruleika

 Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar.
Rafknúnir 16-44 tonna vörubílar fyrir orkuskipti í þungaflutningum.
Leiðtogar í orkuskiptum kaupa 23 rafknúna Volvo vörubíla.

12:00 Aðkoma Orkusjóðs að orkuskiptum í vöruflutningum

Ragnar K. Ásmundsson, verkefnisstjóri – Orkusjóður og orkuverkefni.

Dagsetning: 18. oktober 2022
Lengd: Hálfur dagur 
Mæting: kl. 8.45
Grand Hótel í Reykjavík. – Gullsalur

Þáttökugjald
Fyrir aðildarfélög: 19.900 kr.
Fullt gjald: 24.900 kr.

Láttu vita af okkur á :

Share on facebook
Facebook
Share on twitter
Twitter
Share on linkedin
LinkedIn
Share on digg
Digg

© 2018 Vörustjórnunarfélagið | Hönnun og vefumsjón - WpUmsjon.is