Dagsetning: 4. febrúar 2020
Lengd: Hálfur dagur (3klst.)
Mæting: kl. 8.45
Kringlan 7, 9. hæð
Húsi Verslunarinnar
Birgðanákvæmni er eitt af því mikilvægasta sem fyrirtæki, sem halda birgðir af einhverju tagi þurfa að hafa í lagi til þess að viðhalda réttu jafnvægi birgða í vöruhúsi. Ef birgðanákvæmni er ekki í góðu lagi þá má leiða líkum að því að þjónustustig fyrirtækis til viðskiptavina sinna sé ekki til þess fallið að skapa samkeppnisforskot. Fjárbinding í birgðum er of há og/eða að tapaðar sölur algengar vegna vöruskorts. Framleiðsla stöðvast vegna vöruskorts, birgðir tínas o.s.fv.
Hvaða sölumaður kannast ekki við það að geta ekki með 100% vissu svarað viðskiptavininum hvort vara sé raunverulega til í birgðum eða ekki, þar sem upplýsingar í birgðakerfi eru ekki traustar?
Markviss vinna við að greina ástæður birgðaónákvæmni og umbótavinna getur skilað verulegum ávinningi til fyrirtækja með m.a. auknu þjónustustigi, minni starfsmannakostnaði, aukinni sölu, minni fjárbindingu, minni sóun o.fl.
Námskeiðið er stutt hagnýtt námskeið um grunnþætti birgðanákvæmni. Horft er til þess að námskeiði loknu hafi nemendur öðlast skilning á eftirfarandi þáttum:
Jóhanna Þorbjörg Jónsdóttir starfar sem framkvæmdastjóri aðfangakeðju hjá Innnes. Hún er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Jóhanna hefur yfir 20 ára starfsreynslu við stjórnun aðfangakeðju, sérstaklega innkaupa- & birgðastjórnun m.a hjá Össur, Bláa Lóninu, Distica o.fl. ásamt ýmsum sérverkefnum.
Þáttökugjald
Fyrir aðildarfélög: 24.900 kr.
Fullt gjald: 34.900 kr.
© 2018 Vörustjórnunarfélagið | Hönnun og vefumsjón - WpUmsjon.is